Vefdagbók Örnu!!!

11.07.2007 12:12:09 / daniasara

Ég er flutt...

...í netheimum og nýja heimilisfangið er stelpumamman.blogspot.com endilega kíkið:) -

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.06.2007 07:02:18 / daniasara

Trallalalala....

....ævintýrin enn gerast. Ég var samt ekkert að lenda í ævintýri, mér bara datt ekkert annað í hug sem fyrirsögn. Ég er núna stödd heima hjá pabba og mömmu, búin að vera vakandi í svona tæpa klukkustund og er svona öll að vakna. Dáldið sybbin en það fylgir víst þessum elskum sem ég á að vakna snemma. Og ekkert nema eðlilegt við það. Ég er búin að fara út að hengja upp þvott á snúru og mikið er yndislegt veður. Mig langar næstum bara að vera í sólbaði í ALLAN dag. Hún Danía Rut mín er ennþá sofandi, hún sefur alltaf lengst af systrum sínum, enda yfirleitt síðust að sofna. Hún er búin að vera í greiningu hjá Greiningastöð Ríkisins og ég þakka Guði fyrir þá stofnun því fólkið þarna er alveg frábært og að gera góða hluti. Við fáum svo niðurstöður úr greiningunni á fimmtudaginn næsta. Hún er líklega einhvers staðar á einhverfurófinu en þó ekki mikið einhverf. Mín skoðun sko;) Hún er náttúrulega bara æðið mitt:) Þórey Erla plummar sig vel á leikskólanum og finnst orðið gaman að fara þangað. Hún er dugleg að borða þar og leika sér. Hún er farin að bæta við sig orðum eins og að obba (opna), iggó (tyggjó) og hún kallar systur sínar Didi (Sara Ísold) og Dana (Danía Rut) Algjör snúlla. Sara Ísold er flutt á stóru deildina ásamt vinkonu sinni henni Maríu Perlu og hún er voða montin að vera orðin stór stelpa. En já við mæðgurnar gistum semsagt hérna í sveitinni hjá pabba og mömmu og hér er svo notalegt að vera.

En að öðru. Ég lenti í því um daginn að vakna við mikið sssszzzzzzzzzzzzuð inni hjá mér og þar var auðvitað mættur geitungur. Ég fékk svo mikinn hroll að ég er næstum enn með gæsahúð. Og þetta var á 17. júní. Ég henti sænginni yfir höfuðið svo hann myndi nú ekki koma og drepa mig og hringdi svo í pabba lafhrædd og spurði ráða um hvernig ég gæti myrt geitunginn. Ég átti nefnilega ekki Bana svo ég hafði EKKERT til að drepa hann með. Það endaði með því að ég fór í búðina og keypti mér Bana og og var svo innilega búin að peppa mig upp í einvígi gegn geitungum en hann stakk af á meðan ég var í búðinni. Hefur líklega orðið hræddur. Síðan þetta var hef ég fengið geitung í heimsókn þrisvar sinnum og einu sinni náð að drepa hann. Ég er nefnilega allt annað en skordýravinur. En ég ætla ekki að hafa þetta lengra. Hún Sara Ísold mín er eitthvað að vola. Eigið góðan dag og gott sumar. veit ekki hvenær ég blogga næst. Kveðja, Arna

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.06.2007 16:17:38 / daniasara

Lífið er gott......

.... og ljúft. Ég er byrjuð að vinna alveg 100% og mikið er það ljúf tilfinning. Ég byrjaði síðasta miðvikudag og er svo aðra hverja helgi eins og ég hef verið. Ég var orðin svo stressuð með vinnumál því mér bauðst fyrst sko bara 50% vinna en svo hringdi Dóri í mig og sagðist vera með 100% vinnu fyrir mig. Bara frábært. Ég er að vinna með skemmtilegu og sætu fólki svo ég er sátt:) Á morgun fæ ég stelpurnar og það verður sko gaman. Ég sakna þeirra alltaf þegar þær fara til Davíðs svo á morgun er góður dagur.

Núna er ég í heimsókn hjá Eygló og Bjössa og það er alltaf gaman að kíkja á þau. Ég keyrði framhjá þeim áðan og bíbaði og bíbaði og svipurinn á Eygló bar óborganlegur.... Hún var svooo hissa að hún bauð mér í heimsókn. Hehehe.... En ég ætla ekki að hafa þetta langt blogg að sinni. Vildi bara láta vita að ég er á lífi og fíla það... Hehehehe... Arnan


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 08:20:59 / daniasara

Gönguferð, grill og bakstur brauðs....

...... Gærdagurinn var ÆÐI!!!!!!!!!!!!!! Við fórum í skóg hérna nálægt sem heitir Tröllaskógur (Troldeskoven) og þar löbbuðum við að turni sem var ekki með mjög stöðugur en alveg öruggur. Hann var mjög hár og það var fallegt að sjá útsýnið úr honum þó fæturnir hafi verið ögn dofnir. Í skóginum rákumst við á riiisabjöllur sem voru svartar að lit og Sofia frænka mín var svo djörf að taka eina í lófann... Vön stúlka greinilega. Við sáum líka brúðhjón sem voru stödd í skóginum í myndatöku. Æðislegt að sjá það. Það var verið að taka mynd af brúðarmærinni og þetta var voðalega falleg sjón.

Úr tröllaskóginum fórum við og skoðuðum e-ð bjálkahús sem var reyndar alveg rosalega stórt og flott og í eigu einhvers amerísks félags.... En þaðan fórum við og fundum grill, eða sko Óli vísaði leiðina og við settumst svo í hringinn kringum grillið. Við fengum fyrst skúffuköku sem Anette hafði bakað fyrir ferðina og hún var listagóð. Þegar eldurinn var að verða búinn eða svona farinn að minnka helling þá bökuðum við brauð. Anette snillingur hafði gert deig sem við svo vöfðum utan um enda á trjágrein og bökuðum yfir glóðum eldsins. Þetta var alveg snilld. Og ofsalega gott brauð. Anetta og stelpurnar, Sofia og Elina fóru að syngja og þetta var alveg yfirmáta notalegt. Anette fór að syngja "Drottinn er minn hirðir" og svo þegar hún kom að þessum part af laginu "bikar minn er barmafullur" þá áttaði ég mig á að MINN bikar er barmafullur. Og það er gott, mjög gott.  Við grilluðum líka sykurpúða og það var gott á bragðið:)

Við áttum svo alveg ofsalega notalegt kveld líka. Óli og Anette ásamt Sofiu og Elinu fengu að sjá myndir frá Íslandi og svo horfðum við Hrund á Runaway vacation. Skemmtileg mynd. Þegar ég ætlaði að fara að sofa þá kom í ljós að ég var með félagsskap sem ég var kannski ekki alveg að fíla. Ég alveg gargaði upp yfir mig þegar ég sá tvær silfurskottur skjótast til, ein fór undir dýnuna mína og hin eitthvert annað. Ég galaði á pabba og hann drap þær. Enda hefði ég varla getið sofnað vitandi af þeim lifandi við hliðina á mér. Mathias hló nú bara að þessum pjattskap í frænku sinni enda hann alvanur:)

En núna ætla ég að hætta, eigið góðan dag... Ég er að fara á danska strönd svo ég MUN hafa gaman. Bæ í bili.... Hej, hej... Arna


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.05.2007 10:06:56 / daniasara

Gaman í Danmörku...

.... Það er svooo gaman hérna. Ég er búin að fara í Bilka, H&M, Bianco, Fröken Maria, Kroghs Kram, antikbúð og fleira. Ég er búin að versla helling á stelpurnar og aðeins á mig. Ég á samt eftir að fara aftur í fullt af búðum. Núna erum við í Stövring hjá Óla og Anette, þau eru alveg æðisleg og börnin þeirra eru alveg ofsalega kurteis. Til fyrirmyndar bara. Ég keypti mér antik smáhlutahillu í antikbúðinni. Þetta er svona eldgömul prentaraskúffa og mig hefur ALLTAF langað í svoleiðis. Lífið er gott. Mjög gott. Jæja, ég ætla nú ekki að hafa þetta lengra. Þetta er búið að vera ÆÐI og er bara rétt að byrja... Kær knúsukveðja til allra á KLAKANUM... Hehehehe, Arna

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 10:46:41 / daniasara

Ég er að fara úúúúúút.....

til Danmerkur í fyrramálið klukkan hálf8. Ég hef ekki farið til útlanda síðan 1999 svo það er löngu kominn tími á mig:):) Ég er að fara með mömmu, pabba og Hrund og við verðum í eina viku. Eygló passar stelpurnar fyrir mig:) Ég er sko að fara að versla alveg helling á mig og stelpurnar og hafa það svakalega gaman. Við ætlum líka í tívolí og á söfn og Strikið. Við munum byrja á að heimsækja Óla frænda og fjölskyldu til Stövring. Ég hlakka svooo til. Ég er að fara í bankann á eftir að kaupa smá gjaldeyri og svona. Í, ég hlakka svo til. Ég var líka að kaupa mér sófa í gær... Alveg geggjaðan sófa. En núna er ég í heimsókn hjá Eygló og systur mínar eru hér allar svo ég ætla að hætta. Góða viku, ég ætla svo að skemmta mér í Danaveldi.... Arnan yfir sig spennta:):):)

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.05.2007 14:19:28 / daniasara

Lífið er ....

... ljúft. Er það ekki??? Sólin er að hækka og skína meira og ég keypti mér sólblóm í gær. Ýkt sætt og ég keypti mér mold og stóran blómapott og setti "lucky bamboo-ana" mína í mold. Geggjað flott sko. En vá hvað ég er andlaus, ætlaði að blogga alveg gommu en hef svo bara ekkert að segja. Bæ í bili, Arnan


» 6 hafa sagt sína skoðun

18.04.2007 20:29:41 / daniasara

Í bíómynd....

Mér leið nú bara eins og væri stödd í kvikmyndinni "Ladder 49" áðan. Ég var að keyra Laugaveginn og sé þá að það er svaka bruni e-r staðar. Við Eygló vorum sko saman og við komumst ekki niður Bankastrætið því það var búin að loka þar vegna brunans. Við keyrðum þá Hverfisgötuna niður og vippuðum okkur upp á gangstétt og vorum með brunann bara á breið"rúðu" fyrir framan okkur. Þetta var alveg rosalegt. Ég sá alveg eldtungurnar koma upp úr þakinu og slökkviliðsmennina að berjast með gommu af vatni á móti eldinum. En rosalegur kraftur var í eldinum. Hann var eiginlega ótöðvandi. Og reykurinn, jiminn, það var gott að það var vindur en ekki logn því annars hefði verið óbærilegt þarna. En guðs mildi að ekkert manntjón varð.

Annars er nú alveg barasta frábærlega fínt að frétta af mér. Í gær var ég hjá henni Eygló minni þegar pabbi hringir í mig og biður mig að koma með bíllyklana út. Ég stökk út og þá sé ég pabba koma á gamla peogeot-inum hennar ömmu. Og pabbi kom til að "skipta" við mig. Ég hef haft afnot af hvíta bílnum þeirra pabba og mömmu, borgað samt tryggingar og það sjálf. Pabba vantaði bíl fyrir Pólverjana sem vinna hjá honum, svo hann keypti ömmu bíl og Pólverjarnir fá hvíta og ég fékk ömmu bíl sem er nú minn. Og þvílík hamingja:):):) Ég á svo góðan og frábæran pabba:):) Það fylgdi sko geislaspilari svo núna er ég alltaf að góla með Friðriki Ómari þegar hann syngur júróvisjonsmellinn sinn "Eldur" :):) Ég keypti mér nefnilega diskinn um daginn:):) Jæja, mig langaði bara að láta vita að ég er lifandi og í fullu fjöri....

Lifið í lukku en ekki krukku..... Hehehehe, þetta slagorð er líklega jafngamalt mér:):) Arnan


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 22:13:54 / daniasara

Gullkorn og yndin mín þrjú:):)

Ég er svo rík kona að stundum finnst mér ég varla verðskulda það. En ég er líka þakklát og þakka Guði á hverjum degi fyrir blessanir mínar. Ég var lasin um daginn og hún Sara Ísold var alveg rosalega meðvirk í að vera líka "lasin" Hún sagði í eitt skiptið, "mamma, mér er svo heitt á ennunum mínum og hárunum, ég held ég sé líka lasin. Hún var ekkert lasin en vorkenndi mér bara svo mikið og vildi vera veik eins og ég. Seinna sama dag spurði hún mig, "mamma, ertu lasin????" og ég svaraði auðvitað játandi, þá sagði sú stutta, "viltu mömmu þína???" Ég sagði henni að mamma væri orðin svo stór að hún þyrfti ekki mömmu sína þó hún væri lasin. "viltu mig???" spurði trítlan mig þá:):):)

Danía Rut er líka alveg endalaust að gleðja mig, hún er nýbúin að læra að skrifa nafnið sitt og gerir það best af krökkunum á sinni deild:):) Henni fer rosalega hratt fram í tjáningu og það hjálpar henni mikið að vera í talþjálfun hjá henni Eyrúnu. Hún var í ferðalagi með leikskólanm í dag og María sem er þroskaþjálfinn á leikskólanum var eitthvað að skipta sér af henni, þá segir hún bara " ég er ekki að tala við þig" Mín bara góð með sig..... Hún er líka nýfarin að kalla Ragnheiði "Aggheiðu" en hún er með Daníu Rut í stuðning. Hún Danía Rut bræddi mig alveg ofan í tær um daginn. Hún kom til mín og knúsaði mig alveg helling og sagði við mig " mamma, þú góð OG sæt...." það sem ég bráðnaði... Þær kunna sko alveg að fylla á tankinn hjá mér þegar ég er þreytt og lúin.

Þórey Erla er búin að vera lasin síðan á föstudag, elsku litla skinnið. Hún er hálfpartinn búin að vera lasin síðan um árámótin. Alltaf með kvef og e-ð slöpp. Hún er ekki farin að ganga, er voðalega varkár ef maður ætlar að svindla á henni og nota skeiðar og sleppa henni svo. Hún sér sko alveg í gegnum það. Hún er farin að segja mamma, babbi, og da "takk". Hún er alltaf brosandi og hlæjandi og hún er mikið farin að leika við systur sínar og sérstaklega Söru Ísold sem er alveg ótrúlega þolinmóð við hana!!!!

Já ég er sko alveg rosalega rík kona. Ég er núna hjá pabba og mömmu á Selfossi, það er svoooo notalegt að vera hérna. Kem oft og gisti, svo notó potó. Vð systurnar vorum að fá hluti frá Hrefnu ömmu, ég fékk málverk, kertastjaka, blómavasa, blómabækur og fleira. Rosalega gaman að fá svona hluti. Það var sko verið að selja íbúðina hennar ömmu og öllu búinu var skipt á milli pabba og systkinanna. Svo fengum við systrurnar að velja það sem okkur langaði í:):) Ég ætla ekki að hafa þetta lengra..... Hafið það ofsa gott, njótið lífins. Arnan 


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.02.2007 12:44:35 / daniasara

Sara Ísold 3 ára....

Mikið var gærdagurinn skemmtilegur svo vægt sé að orði komist. Ég var að halda upp á 3ja ára afmælið hennar Söru Ísoldar hjá pabba og mömmu. Mamma hjálpaði mér alveg helligng við að undirbúa og baka. Íris systir gerði svo alveg svakalega flotta afmælisköku í froskalíki:):) Takk mamma og Íris, ég elska ykkur grilljón. En margir komu og glöddu mig og Söru Ísold með nærveru sinni og pökkum. Daman fékk alveg helling, leikföng, föt og pening. Það var sko nóg að gera að prófa allt nýja dótið og það var næstum nýtt dót fyrir hvert barn í afmælinu að prófa.... Ég, Danía Rut og Þórey Erla gáfum henni hárauðan Brio dúkkuvagn, svona gamaldags. Henni fannst hann svooo flottur þegar hún var nýbúin að fá hann að hún knúsaði mig bara með einni hendi því hún vildi sko ekki sleppa gripnum:):) Algjör snúlla. Hún er svo búin að vera í mömmó síðan. Ég er eiginlega svona að stelast til að blogga. Þegar maður á svona 3 ÆÐISLEG kríli þá er ekki alltaf tími til að vera að blogga. Rétt núna var Danía Rut að koma og knúsa mig svo ég held ég segi þetta gott. Takk allir sem komu í gær og líka þeir sem komu ekki en sendu samt gjöf:):) Takk Lína:):):) Kær kveðja, Arna

» 7 hafa sagt sína skoðun

11.02.2007 18:41:12 / daniasara

Lífið er...

..... Gott. Mig langar svooo að vera ástfangin. Það er svo gaman, ég sé fallega menn út um allt. Það úir og grúir af þeim:-/ En það er fínt, það má nebbla horfa:):) En ég er núna hjá pabba og mömmu, við vorum hérna í vöfflukaffi systurnar og erum bráðlega að fara í bæinn. Þetta er nú voða litlaust blogg, vilid bara láta vita að ég er á lífi. Lifið heil en ekki hálf:):) Arna

» 3 hafa sagt sína skoðun

27.01.2007 21:30:33 / daniasara

Já...

... það er nefnilega það. Mikið óskaplega er orðin mikil stéttaskipting á Íslandi. Leiðinleg staðreynd. Á meðan milljónamæringar búa til rauðan dregil handa öllu ríka og fræga fólkinu á Íslandi og borgar Elton John 70 millur til að skemmta í klukkutíma, þá er fólk hér á Íslandi sem nær ekki endum saman og þarf að fá hálp hjá mæðrastyrksnefnd. Mér finnst þetta eiginlega alveg hræðilegt. En lítið sem ég get gert. Myndi maður hafa samvisku í svona ef maður ætti svona marga peninga og vissi af öðru fólki sem hefði það skítt. Ég held ekki:(

Annars hef ég það nú bara fínt. Er búin að vera að vinna aðeins og taka til heima hjá mér. Davíð var nefnilega að flytja um daginn og ég átti víst ennþá alveg helling af dóti hjá honum. En það er nú allt eiginlega komið í geymslu. Ég fékk stelpurnar til mín svona auka á föstudaginn því það var lokað á leikskólanum og Sara Ísold var að skoða neglurnar mínar. Ég fékk svona gelneglur hjá henni Emiliu frænku um daginn. Sara Ísold var svo hrifin af nöglunum að hún sagði við mig "mamma, þú fara í buðina á morgun og kaupa neglur handa mér", hún verður sko góð einn daginn;);)

Núna er ég í heimsókn hjá Eygló og Bjössa, vorum að horfa á Eurovision, gaman að sjá frænku mína hana Hrönn og Fanný Tryggva og Ágústu Ósk að syngja bakraddir. Kristna fólkið bara að meika það. En jæja, það eru allir farnir að kalla á mig. Ég ætlaði víst bara að vera í 5 mínútur í tölvunni. Verð að fara að fá mér tölvu heim til mín:):) Guð geymi ykkur öll, Love, love, Arna


» 6 hafa sagt sína skoðun

31.12.2006 16:08:27 / daniasara

Gleði, gleði, gleði....

....... Kom yfir mig eins og hvirfilbylur í gær þegar klukkan var alveg að verða 4. Ég var að vinna og ég heyrði kallað nafnið mitt. Ég sá mömmu og pabba og fannst voða gaman að sjá þau. En svo sá ég líka litlar tvær dömur og ég var svo glöööð að sjá þær að fór að gráta í miðri búð. Knúsaði þær og kyssti alveg í klessu. Mamma og pabbi höfðu farið og sótt Daníu Rut og Söru Ísold á Blönduós en þangað keyrðu Doris og Mummi á móti pabba og mömmu. Ég get varla lýst því hvað ég varð glöð að fá stelpurnar mínar. Það var bara ÆÐISLEGT. Núna vantar mig bara hana Þóreyju Erlu en hún verður vonandi útskrifuð af spítalanum á þriðjudaginn og kemur vonandi suður sama dag. Hún er laus við slönguna sem færði henni næringu í æð. Hún er með bakteríusýkingu í lungunum sínum og slæma flensu. Þið megið endilega biðja fyrir henni, litlu elskunni minni. Jæja, núna er ég semsagt hjá pabba og mömmu og er fljótlega að fara að baða dúllurnar. Þær fá að fara með frænkum sínum í bað, Danía Rut með Petru Rut og Sara Ísold með Katrínu Töru.... Gleðileg áramót og takk fyrir gömlu árin.............. Arnan glaða:):):)


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.12.2006 00:50:55 / daniasara

GRÁTUR...............

........... Hún Þórey Erla litla skinnið mitt er komin með e-a bakteríusýkingu og er á sjúkrahúsinu á Akureyri og verður þar næstu 2-3 sólarhringa. :(:(:( Ég var farin að hlakka svo til að fá stelpurnar til mín en núna frestast það til í fyrsta lagi 2.janúar. Ég er svooo svekkt. Og verst þykir mér að geta ekki farið og verið hjá henni. Ég heyrði í Davíð áðan og hún var grátandi og ég mátti hafa mig alla við að fara ekki að gráta líka, enda á leið í klippingu! En svo fékk ég að tala við hana áðan í símann og hú var voða hissa og fór svo aðeins að tala við mig. Úff ég sakna stelpnanna, svooo mikið. Sara Ísold sagði fyrir nokkrum dögum við pabba sinn, "Pabbi, fer ég ég ekki bráðum aftur til mömmu?" Það er gott að vita að einhver saknar mín:-/  En ég ætla ekki að hafa þetta lengra enda mið nótt komin. Arnan sorgmædda:(

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.12.2006 00:04:31 / daniasara

Jólagjafirnar,,,,,

Til mín voru 6 þetta árið. Tveimur fleiri en ég hafði búist við. Pabbi og mamma gáfu mér Ipod nano og ég var svo glöð að ég fór að gráta. Bjóst sko alls ekki við ipod en mig langaði MIKIÐ í hann. Frá Eygló minni fékk ég rosalega flottan fíl, Íris gaf mér æðislegan jólasvein, svaka sætan. Hrund skvís gaf mér draumaráðningabókina. Ég fékk svo pakka frá stelpunum mínum en mamma átti heiðurinn af því að kaupa hana. Ég hafði ekki hugmynd um það:):) Mamma er svo mikið ÆÐI. Svo fékk ég Joe boxer náttbuxur frá Ellu Gittu. Þessar gjafir glöddu mig mikið.

Núna eru bara 4 dagar þangað til stelpurnar mínar koma og mikið verður gaman þá. Þær hafa það voða gott hjá afa sínum og ömmu en ég hlakka alveg svakalega mikið til að knúsa þær þegar þær koma. Jújú. En núna er ég semsagt stödd hjá henni Írisi systir sætu kúlulínu. Við erum að fara að spila Trivial Pursuit en Eygló fékk það í möndlugjöf. Eygló og Bjössi eru hérna, Íris og Karlott og svo eru Hrund og Thea á leiðinni. Þetta verður alveg svaka skemmtilegt kvöld. Áðan var afmæli hjá Tedda frænda og þar var gaman. Það er sko alltaf gaman að heimsækja þau fjölskylduna. En jæja, þar sem ég "stalst" til að blogga hérna þá er ég að hugsa um að hætta því núna og láta þetta gott heita. Ætla að fara að spila og hlæja örugglega helling. Við erum svo skemmtileg víst. Lifið heil en ekki hálf. Hóhóhóhóhóhó, Arnan


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Gamla síðan mín