Vefdagbók Örnu!!!

18.02.2007 12:44:35 / daniasara

Sara Ísold 3 ára....

Mikið var gærdagurinn skemmtilegur svo vægt sé að orði komist. Ég var að halda upp á 3ja ára afmælið hennar Söru Ísoldar hjá pabba og mömmu. Mamma hjálpaði mér alveg helligng við að undirbúa og baka. Íris systir gerði svo alveg svakalega flotta afmælisköku í froskalíki:):) Takk mamma og Íris, ég elska ykkur grilljón. En margir komu og glöddu mig og Söru Ísold með nærveru sinni og pökkum. Daman fékk alveg helling, leikföng, föt og pening. Það var sko nóg að gera að prófa allt nýja dótið og það var næstum nýtt dót fyrir hvert barn í afmælinu að prófa.... Ég, Danía Rut og Þórey Erla gáfum henni hárauðan Brio dúkkuvagn, svona gamaldags. Henni fannst hann svooo flottur þegar hún var nýbúin að fá hann að hún knúsaði mig bara með einni hendi því hún vildi sko ekki sleppa gripnum:):) Algjör snúlla. Hún er svo búin að vera í mömmó síðan. Ég er eiginlega svona að stelast til að blogga. Þegar maður á svona 3 ÆÐISLEG kríli þá er ekki alltaf tími til að vera að blogga. Rétt núna var Danía Rut að koma og knúsa mig svo ég held ég segi þetta gott. Takk allir sem komu í gær og líka þeir sem komu ekki en sendu samt gjöf:):) Takk Lína:):):) Kær kveðja, Arna
Íris og fjölskylda skrifaði
Takk æðislega fyrir okkur! Rosa gaman að koma í afmælið hennar Söru Ísoldar. Sjáumst svo hressar næst ;) kv. Íris
Hrund skrifaði
já það var rosa gaman í gær:) Elska ykkur mikið mikið mikið! Hrund
Jóna María skrifaði
hæhæ :) þú átt endalaust krúttlegar stelpur :)
Hrund skrifaði
Hæhæ - og TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ!!! Ohh það er svo gaman að eiga afmæli! Enda búinn að vera mikil tilhlökkun fyrir deginum, am I right?? Well, njóttu dagsins frá a-ö og láttu alla dekra við þig eins og þú getur!! Love you long time Hrund sys
Íris Dögg skrifaði
Hæ hæ Arna Til hamingju með afmælið. Hafðu það gott kveðja Íris Dögg
Mamma skrifaði
Elsku gull. Til hamingju með afmælisdaginn þinn. Loksins orðin 26 :o) Guð blessi þig ríkulega og veiti þér það sem hjarta þitt þráir. Elska þig í strimla. Sjáumst á eftir. Mamman þín
Anna skrifaði
Til hamingju með daginn :) kveðja frá Akureyri Anna.

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Gamla síðan mín