Vefdagbók Örnu!!!

13.01.2006 11:18:08 / daniasara

Prins Mjá....

Heitir kisustrákurinn sem við fengum í gær. Hann er svooooo sætur. Hann heitir líka Mjá og verður kallaður báðum nöfnunum. Danía Rut kann nefnilega að segja Mjá og það er mjög mikiðvægt fyrir hana að geta sagt allavega annað nafnið hans. Þið skiljið:):) Svo núna erum við 7 í fjölskyldu, einn pabbi, ein mamma, 3 dætur, einn Kalli kanína og einn Prins Mjá kisustrákur. Ég er ekki með alveg á hreinu hvað hann er gamanll en fæ að vita það í dag. Ykkur sem langar að sjá hann endilega kíkið í heimsókn. Hann er rosa gæfur og mikið fyrir að kúra. Og malar mikið. Hann er svooo mikið krútt. Danía Rut kom með mér að sækja hann og Eygló mín því einhver þurfti að halda á honum heim. En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, er með tvær hlaupabólustelpur heima. Bæ í bili, Arnan!!!

» 3 hafa sagt sína skoðun

11.01.2006 11:21:57 / daniasara

Minn ástkæri....

eiginmaður Davíð á afmæli í dag:haha::haha: Orðinn 25 ára, hvorki meira né minna. Mér finnst einhvern veginn að maður sé orðinn fullorðinn þegar maður er orðinn 25 ára. Samt eigum við Davíð 3 börn og erum bráðum búin að vera gift í 4 ár!!!! Ég gaf honum miða á The Scneedles sem er leiksýning sem verður sýnd í Austurbæjarbíói 27. janúar. Ég fer auðvitað með honum og ég vona að það verði svaka gaman. Eygló æðibiti ætlar að passa en meira um það síðar. Vil nú bara óska elskunni minni til hamingju með þetta stórafmæli og nú er ég búin að því svo ég kveð í bili... Arna

» 8 hafa sagt sína skoðun

09.01.2006 12:55:28 / daniasara

Átaksblogg....

Ég er búin að búa til nýja bloggsíðu sem er átakssíðan mín. Ég er byrjuð aftur í danska svo ef ykkur langar að fylgjast með mér minnka þá kíkið þangað og verið dugleg að kommenta og peppa mig upp, já nú skulu þau af!!!!! Síðuna finnið þið á blog.central.is/danski-kurinn ,kær megrunarkveðja,  Arna bolla...

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.01.2006 23:52:44 / daniasara

Hún á afmæli í dag...

....hún á afmæli í dag, hún á aaaaafmæli hún Hruuuund, hún á afmæli í dag....... Hún er 17 í dag, hún er 17 í dag, hún er 17 hún Hruuuuund, hún er 17 íííí dag. Hjartanlegar hamingjuóskir með bílprófsaldurinn. Þú ert frábær systir. Guð blessi þig:):) Arna

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.01.2006 21:53:53 / daniasara

Jólin og nýtt ár!!!!

Þá er bara komið nýtt ár. 2006 mætt á svæðið. Það kemur alltaf svo skrýtin tillfinning yfir mig þegar nýtt ár byrjar. Gamla árið farið og kemur ALDREI aftur. En jæja, ég átti mjög notaleg og heimakær jól. Hún Danía Rut mín vaknaði að morgni aðfangadags með nokkrar bólur á líkamanum. Þær voru fljótar að verða fleiri og fleiri og dúllan mín var svolítið lítil í sér og klæjaði mikið. En hlaupabólan tók ekki langan tíma því á gamlársdag voru bólurnar orðnar þurrar og hún gat farið út. EN ég fékk nokkra jólapakka eins og venja er á jólunum. Frá mínum æðislega Davíð og hinum frábæru dætrum mínum fékk ég málningadót. Ekki förðunarvörur sko, heldur, málningu, pensla, spaða, striga og blýant og hnoðleður. Ég er semsagt byrjuð að mála. Mér gengur svona ágætlega. En ég fékk líka rosalega flott leðurveski frá henni Eygló minni og netaskó. Frá Hrund dúllu fékk ég svo englastyttu sem mig langaði svooooo í. Frá pabba og mömmu fengum við Davíð saman, Jón Odd og Jón Bjarna, bókina "með lífið að láni", og matvinnsluvél frá bosch. Frá tendgó fengum við stafrænan hitamæli sem er mjög vinsælt hjá Söru Ísold og tvo hjartapúða á hjónarúmið. Frá afa og ömmu Davíðs fengum við svo George Foreman grill. Mér finnst svo gaman að fá pakka að ég var bara jafn spennt og hún Danía Rut mín að opna pakkana. En á maður ekki að varðveita barnið í sér??? Það held ég nú!!! Á áramótunum vorum við boðin í mat til pabba og mömmu og það var mjög gaman að vera með þeim. Stelpurnar voru voða hrinfar af flugeldunum en við stoppuðum hjá þeim fram yfir skaup, þá voru þær reyndar sofnaðar stóru stelpurnar. Akkúrat þegar árið 2006 kom sat ég í sófanum heima og horfði á það koma. Það var gaman að sjá það.

EN það sem stendur upp úr á mínu ári 2005 er að sjálfsögðu fæðingin hennar Þóreyjar Erlu. Mér fannst æðislega gaman að nefna hana í höfuðið á mömmu, enda er mamma mesta perla í heimi og það vita allir sem hana þekkja svo ég er stolt að eiga eina Erlu:):) Það stendur líka uppúr að hafa flutt suður og öll hjálpin sem Danía Rut er að fá í öllum sínum málum. Það er bara alveg frábært. Hraunborg rúlar sko!!!! Konurnar sem vinna þar eru að fara á námskeið í tákni með tali svo þær geti allar átt samskipti við dúlluna mína. Alveg fyrirmyndarleikskóli. :haha: Það er líka rosalega gaman að sjá hvað henni Söru Ísold fer mikið fram síðan hún byrjaði á leikskóla, alltaf að bæta við sig orðum og er orðin algjör páfagaukur. Ég þarf að fara að passa mig að segja engin leyndó svo hún heyri!!! Svo er hún farin að syngja alveg helling. Hún syngur lögin, " í skóginum stóð kofi einn...", "hún á afmæli í dag...", og svo syngur hún "adam átti syni sjö" hún syngir þau auðvitað ekki 100% rétt en það er alveg hægt að heyra hvaða lag hún er að syngja. Svooo gaman að henni. En ég ætla að fara að hætta þessu pikki, en ég verð að mæla með að allir ævintýraaðdáendur skelli sér í bíó á myndina "Chronicles of Narnia" Alveg geggjuð mynd, fór á hana um daginn með systrum mínum og hefði verið til í að sjá hana strax aftur. Allir á Narniu, Aslan er GEGGJAÐUR!!! Jæja, bæ í bili. Arna málari... Hehehe

» 7 hafa sagt sína skoðun


Gamla síðan mín