..... Fyrir einni og hálfri viku síðan fékk hún Danía Rut mín
gleraugu. Hún er með -4,5 á báðum augum og -2 í sjónskekkju svo hún
hefur bara nánast ekkert séð þar til hún fékk gleraugun. OG
þvílíkur munur á henni. 3 dögum eftir að hún fékk gleraugun var hún
búin að læra nöfnin á 3 börnum á deildinni. Ekkert smá gaman sko.
Og núna er hún alltaf að bæta við sig nýjum orðum. Hún segir
til dæmis amma en hingað til var amma sko "mumu" og hún er farin að
segja "heim", og " ná í ", og "nóg" og Eygló en hún segir það sko
"Eygó" Það er alveg stórkostlegt að' sjá muninn á henni eða sko
heyra muninn. Hún fékk svona titanium umgjörð utan um gleraugun og
þau eru fjólublá og rooosalega sæt. Fara henni bara mjöög vel. En
núna er ég hjá pabba og mömmu, Eygló bauð okkur öllum í mat,
lambahrygg og meððí og vá hvað þetta var svakalega góður matur.
Ekkert smá höfðinglegt að bjóða okkur en hún bauð okkur öllum sko,
Írisi og fjölskyldu hennar líka. En ég ætla ekki að hafa þetta
lengra. Bæ í bili, Arna