» 1 hafa sagt sína skoðun
.... Ég er ein í Reykjavík. Eða sko ekki alveg ein en Davíð og stelpurnar eru fyrir norðan í sveitasælunni hjá foreldrum Davíðs. Ég er aðeins búin að vera að vinna og gera ýmislegt annað. En það er rosaleg skrýtið að vera allt í einu svona ALEIN. Ég hef ekki verið svona ein síðan Danía Rut fæddist og það eru bráðum 4 ár síðan það var. Ég er búin að sooofa mikið og vera lítið heima og er búin að hafa það mjög notalegt. En ég sakna þeirra mjög mikið. Ég hringdi í fyrradag og talaði við Söru Ísold en henni finnst mjög gaman að tala í símann. Ég spurði hana hvort hún væri hjá pabba og hún jánkaði því og sagði svo "mamma heima bassa bins mjá" eða sko "mamma heima passa Prins Mjá" en þetta var svoooo sætt. Hún vissi sko alveg hvað ég var að gera. Svo spurði ég hana hvort hún saknaði mömmu og hún sagði já. Ohhh, mig langaði nú bara að knúsa hana í gegnum símann. Ég spjallaði líka aðeins við Daníu Rut en hún er ekki eins símasjúk og Sara Ísold en hún sagði allavega að hún væri hjá afa en ekki mamma. Þær eru svo yndislegar. Ég heyrði svo aðeins í Þóreyju Erlu babla en hún sagði bababababa, Davíð er líklega búinn að vera að innprenta þetta í hana
En jæja, ég er núna heima hjá henni Írisi systur minni. Ég er að passa dúllurnar hennar. Þær eru sofnaðar litlu skvísurnar. Gaman að fá aðeins að knúsa þær fyrst mínar dúllur eru svona langt í burtu. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra núna. En hafið það voða gott og mikið væri gaman að sjá smá kvitt í kommentin... Hver sem þú ert.... Arna
P.S. Davíð er aftur byrjaður að blogga Sjáið link á síðuna hans hér til vinstri
» 2 hafa sagt sína skoðun
» 3 hafa sagt sína skoðun