Vísir
Fréttir
Lífið
Íþróttir
Viðskipti
Vefmiðlar
BlogCentral.is
Innskráning
Nýskráning
Vefdagbók Örnu!!!
21.08.2006 21:29:12 / daniasara
Dadadarammmmmm.....
Dadadarammm. Eygló er að fara að gifta sig og ég fékk að fara með henni í dag að skoða brúðar...............meyjakjóla. Hún Danía Rut verður sko brúðarmær ásamt henni Petru Rut. Og það sem þær verða sætar. Ég held að Eygló hafi fundið réttu kjólana fyrir skvísurnar og þær verða svoo æðislegar. Ohh, ég hlakka til. Hún Danía Rut er svo mikil dama í sér svo hún mun alveg njóta þess í botn að vera svona mikil prinsessa í einn dag.
Íris var auðvitað með að skoða kjóla og Hrund skvís var líka. Þetta var mjög gaman að flandrast aðeins svona með þessum æðislegu systrum sem ég á. Ég er svooo heppin.
Ég verð að segja ykkur frá svolitlu sætu sem litlu dúllurnar mínar gerðu í fyrradag. Ég var glænýbúin að þrífa fiskabúrið okkar og það var alveg rosalega flott. Stelpurnar voru að borða skyr og ég var að taka saman eftir dót inni í herbergi. Þegar ég kem fram þá sé ég að það er komin "þoka" hjá elsku litlu fiskunum okkar. Þegar ég fór að gá betur af hverju "þokan" stafaði" þá höfðu elskurnar mínar gefið fiskunum skyr með sér. Þetta var eiginlega svona súrsæt fyndni því ég þurfti auðvitað að þrífa búrið aftur. En það var allt í lagi, bara góð æfing
Jákvæðni, jákvæðni
En ég er með góðar fréttir í sambandi við Daníu Rut elsta gullið mitt. Við Davíð fórum um daginn og hittum Stefán Hreiðarsson, forstöðumann greiningar og ráðgjafastöð ríkisins. Og hann hafði góðar fréttir að færa. Það sem er að hjá henni Daníu Rut er að stundum gerist það að genin raða sér þannig upp að einn þroskaþáttur er seinni en hitt. Og það hefur gerst hjá Daníu Rut. Málþroskinn kemur en hann kemur bara hægar og seinna en hjá öðrum krökkum. Yndislegart fréttir
Guð er góður. Stefán lýsti þessu fyrir okkur að ímynda okkur líkamann sem sinfóníuhljómsveit og 5% af hljómsveitinni væri með röng nótnablöð. Það væri ekkert að þeirra nótnablöðum en þau virkuðu bara ekki vel með hinum... Skiljiði??? Það er annað sem hann sagði okkur og það er hún hefur sýnt einhverfudrætti en það er svo lítið að það telst ekki einu sinni vera að "snert af einhverfu" Hún er bara svolítið íhaldssöm þessi elska sem ég á. Hef ekki miea að segja í bili. Bless, Arna
»
5 hafa sagt sína skoðun
Gamalt blogg
Júlí - 2007 (1)
Júní - 2007 (2)
Maí - 2007 (4)
Apríl - 2007 (1)
Mars - 2007 (1)
Febrúar - 2007 (2)
Janúar - 2007 (1)
Desember - 2006 (5)
Nóvember - 2006 (3)
Október - 2006 (5)
September - 2006 (2)
Ágúst - 2006 (1)
Júlí - 2006 (2)
Júní - 2006 (2)
Maí - 2006 (4)
Apríl - 2006 (2)
Mars - 2006 (2)
Febrúar - 2006 (2)
Janúar - 2006 (5)
Desember - 2005 (8)
Nóvember - 2005 (5)
Október - 2005 (3)
September - 2005 (4)
Ágúst - 2005 (1)
Júlí - 2005 (2)
Júní - 2005 (11)
Maí - 2005 (3)
Apríl - 2005 (6)
Mars - 2005 (7)
Febrúar - 2005 (14)
Aðalvalmynd
Dagbók
Gestabók
Myndasöfn
Vefstjórn
AÐRIR BLOGGARAR:)
Kata frænka
Anna Sigga
Eygló systir
Ella Gitta
Pabbi
Teddi
Kiddi
Thea
Mamma
Karlott mágur
Íris systir
Davíð
BARNALANDSKRÍLI
Danía Rut
Sara Ísold
Petra Rut
Katrín Tara
Róbert Örn
Karen Erla
Þórey Erla
Gamla síðan mín
Gamla síðan