Vefdagbók Örnu!!!

07.03.2007 22:13:54 / daniasara

Gullkorn og yndin mín þrjú:):)

Ég er svo rík kona að stundum finnst mér ég varla verðskulda það. En ég er líka þakklát og þakka Guði á hverjum degi fyrir blessanir mínar. Ég var lasin um daginn og hún Sara Ísold var alveg rosalega meðvirk í að vera líka "lasin" Hún sagði í eitt skiptið, "mamma, mér er svo heitt á ennunum mínum og hárunum, ég held ég sé líka lasin. Hún var ekkert lasin en vorkenndi mér bara svo mikið og vildi vera veik eins og ég. Seinna sama dag spurði hún mig, "mamma, ertu lasin????" og ég svaraði auðvitað játandi, þá sagði sú stutta, "viltu mömmu þína???" Ég sagði henni að mamma væri orðin svo stór að hún þyrfti ekki mömmu sína þó hún væri lasin. "viltu mig???" spurði trítlan mig þá:):):)

Danía Rut er líka alveg endalaust að gleðja mig, hún er nýbúin að læra að skrifa nafnið sitt og gerir það best af krökkunum á sinni deild:):) Henni fer rosalega hratt fram í tjáningu og það hjálpar henni mikið að vera í talþjálfun hjá henni Eyrúnu. Hún var í ferðalagi með leikskólanm í dag og María sem er þroskaþjálfinn á leikskólanum var eitthvað að skipta sér af henni, þá segir hún bara " ég er ekki að tala við þig" Mín bara góð með sig..... Hún er líka nýfarin að kalla Ragnheiði "Aggheiðu" en hún er með Daníu Rut í stuðning. Hún Danía Rut bræddi mig alveg ofan í tær um daginn. Hún kom til mín og knúsaði mig alveg helling og sagði við mig " mamma, þú góð OG sæt...." það sem ég bráðnaði... Þær kunna sko alveg að fylla á tankinn hjá mér þegar ég er þreytt og lúin.

Þórey Erla er búin að vera lasin síðan á föstudag, elsku litla skinnið. Hún er hálfpartinn búin að vera lasin síðan um árámótin. Alltaf með kvef og e-ð slöpp. Hún er ekki farin að ganga, er voðalega varkár ef maður ætlar að svindla á henni og nota skeiðar og sleppa henni svo. Hún sér sko alveg í gegnum það. Hún er farin að segja mamma, babbi, og da "takk". Hún er alltaf brosandi og hlæjandi og hún er mikið farin að leika við systur sínar og sérstaklega Söru Ísold sem er alveg ótrúlega þolinmóð við hana!!!!

Já ég er sko alveg rosalega rík kona. Ég er núna hjá pabba og mömmu á Selfossi, það er svoooo notalegt að vera hérna. Kem oft og gisti, svo notó potó. Vð systurnar vorum að fá hluti frá Hrefnu ömmu, ég fékk málverk, kertastjaka, blómavasa, blómabækur og fleira. Rosalega gaman að fá svona hluti. Það var sko verið að selja íbúðina hennar ömmu og öllu búinu var skipt á milli pabba og systkinanna. Svo fengum við systrurnar að velja það sem okkur langaði í:):) Ég ætla ekki að hafa þetta lengra..... Hafið það ofsa gott, njótið lífins. Arnan 


» 4 hafa sagt sína skoðun


Gamla síðan mín