Vefdagbók Örnu!!!
Ég er flutt...
endilega kíkið:) -
Trallalalala....
ævintýri, mér bara datt ekkert annað í hug sem fyrirsögn. Ég er
núna stödd heima hjá pabba og mömmu, búin að vera vakandi í svona
tæpa klukkustund og er svona öll að vakna. Dáldið sybbin en það
fylgir víst þessum elskum sem ég á að vakna snemma. Og ekkert nema
eðlilegt við það. Ég er búin að fara út að hengja upp þvott á snúru
og mikið er yndislegt veður. Mig langar næstum bara að vera í
sólbaði í ALLAN dag. Hún Danía Rut mín er ennþá sofandi, hún sefur
alltaf lengst af systrum sínum, enda yfirleitt síðust að sofna. Hún
er búin að vera í greiningu hjá Greiningastöð Ríkisins og ég þakka
Guði fyrir þá stofnun því fólkið þarna er alveg frábært og að gera
góða hluti. Við fáum svo niðurstöður úr greiningunni á fimmtudaginn
næsta. Hún er líklega einhvers staðar á einhverfurófinu en þó ekki
mikið einhverf. Mín skoðun sko;) Hún er náttúrulega bara æðið
mitt:) Þórey Erla plummar sig vel á leikskólanum og finnst orðið
gaman að fara þangað. Hún er dugleg að borða þar og leika sér. Hún
er farin að bæta við sig orðum eins og að obba (opna), iggó
(tyggjó) og hún kallar systur sínar Didi (Sara Ísold) og Dana
(Danía Rut) Algjör snúlla. Sara Ísold er flutt á stóru deildina
ásamt vinkonu sinni henni Maríu Perlu og hún er voða montin að vera
orðin stór stelpa. En já við mæðgurnar gistum semsagt hérna í
sveitinni hjá pabba og mömmu og hér er svo notalegt að
mættur geitungur. Ég fékk svo mikinn hroll að ég er næstum enn með
gæsahúð. Og þetta var á 17. júní. Ég henti sænginni yfir höfuðið
svo hann myndi nú ekki koma og drepa mig og hringdi svo í pabba
lafhrædd og spurði ráða um hvernig ég gæti myrt geitunginn. Ég átti
nefnilega ekki Bana svo ég hafði EKKERT til að drepa hann með. Það
endaði með því að ég fór í búðina og keypti mér Bana og og var svo
innilega búin að peppa mig upp í einvígi gegn geitungum en hann
stakk af á meðan ég var í búðinni. Hefur líklega orðið hræddur.
Síðan þetta var hef ég fengið geitung í heimsókn þrisvar sinnum og
einu sinni náð að drepa hann. Ég er nefnilega allt annað en
skordýravinur. En ég ætla ekki að hafa þetta lengra. Hún Sara Ísold
mín er eitthvað að vola. Eigið góðan dag og gott sumar. veit ekki
Lífið er gott......
er það ljúf tilfinning. Ég byrjaði síðasta miðvikudag og er svo
aðra hverja helgi eins og ég hef verið. Ég var orðin svo stressuð
með vinnumál því mér bauðst fyrst sko bara 50% vinna en svo hringdi
Dóri í mig og sagðist vera með 100% vinnu fyrir mig. Bara frábært.
Ég er að vinna með skemmtilegu og sætu fólki svo ég er sátt:) Á
morgun fæ ég stelpurnar og það verður sko gaman. Ég sakna þeirra
alltaf þegar þær fara til Davíðs svo á morgun er góður
alltaf gaman að kíkja á þau. Ég keyrði framhjá þeim áðan og bíbaði
og bíbaði og svipurinn á Eygló bar óborganlegur.... Hún var svooo
hissa að hún bauð mér í heimsókn. Hehehe.... En ég ætla ekki að
hafa þetta langt blogg að sinni. Vildi bara láta vita að ég er á
Gönguferð, grill og bakstur brauðs....
skóg hérna nálægt sem heitir Tröllaskógur (Troldeskoven) og þar
löbbuðum við að turni sem var ekki með mjög stöðugur en alveg
öruggur. Hann var mjög hár og það var fallegt að sjá útsýnið úr
honum þó fæturnir hafi verið ögn dofnir. Í skóginum rákumst við á
riiisabjöllur sem voru svartar að lit og Sofia frænka mín var svo
djörf að taka eina í lófann... Vön stúlka greinilega. Við sáum líka
brúðhjón sem voru stödd í skóginum í myndatöku. Æðislegt að sjá
það. Það var verið að taka mynd af brúðarmærinni og þetta var
sem var reyndar alveg rosalega stórt og flott og í eigu einhvers
amerísks félags.... En þaðan fórum við og fundum grill, eða sko Óli
vísaði leiðina og við settumst svo í hringinn kringum grillið. Við
fengum fyrst skúffuköku sem Anette hafði bakað fyrir ferðina og hún
var listagóð. Þegar eldurinn var að verða búinn eða svona farinn að
gert deig sem við svo vöfðum utan um enda á trjágrein og bökuðum
yfir glóðum eldsins. Þetta var alveg snilld. Og ofsalega gott
brauð. Anetta og stelpurnar, Sofia og Elina fóru að syngja og þetta
var alveg yfirmáta notalegt. Anette fór að syngja "Drottinn er minn
hirðir" og svo þegar hún kom að þessum part af laginu "bikar minn
Anette ásamt Sofiu og Elinu fengu að sjá myndir frá Íslandi og svo
ég ætlaði að fara að sofa þá kom í ljós að ég var með félagsskap
sem ég var kannski ekki alveg að fíla. Ég alveg gargaði upp yfir
mig þegar ég sá tvær silfurskottur skjótast til, ein fór undir
dýnuna mína og hin eitthvert annað. Ég galaði á pabba og hann drap
þær. Enda hefði ég varla getið sofnað vitandi af þeim lifandi við
hliðina á mér. Mathias hló nú bara að þessum pjattskap í frænku
fara á danska strönd svo ég MUN hafa gaman. Bæ í bili.... Hej,
Gaman í Danmörku...
er búin að versla helling á stelpurnar og aðeins á mig. Ég á samt
eftir að fara aftur í fullt af búðum. Núna erum við í Stövring hjá
Óla og Anette, þau eru alveg æðisleg og börnin þeirra eru alveg
ofsalega kurteis. Til fyrirmyndar bara. Ég keypti mér antik
smáhlutahillu í antikbúðinni. Þetta er svona eldgömul
prentaraskúffa og mig hefur ALLTAF langað í svoleiðis. Lífið er
gott. Mjög gott. Jæja, ég ætla nú ekki að hafa þetta lengra. Þetta
er búið að vera ÆÐI og er bara rétt að byrja... Kær knúsukveðja til
Ég er að fara úúúúúút.....
til útlanda síðan 1999 svo það er löngu kominn tími á mig:):) Ég er
Eygló passar stelpurnar fyrir mig:) Ég er sko að fara að versla
alveg helling á mig og stelpurnar og hafa það svakalega gaman. Við
ætlum líka í tívolí og á söfn og Strikið. Við munum byrja á að
heimsækja Óla frænda og fjölskyldu til Stövring. Ég hlakka svooo
til. Ég er að fara í bankann á eftir að kaupa smá gjaldeyri og
svona. Í, ég hlakka svo til. Ég var líka að kaupa mér sófa í gær...
Alveg geggjaðan sófa. En núna er ég í heimsókn hjá Eygló og systur
mínar eru hér allar svo ég ætla að hætta. Góða viku, ég ætla svo að
Lífið er ....
meira og ég keypti mér sólblóm í gær. Ýkt sætt og ég keypti mér
mold og stóran blómapott og setti "lucky bamboo-ana" mína í mold.
Geggjað flott sko. En vá hvað ég er andlaus, ætlaði að blogga alveg
gommu en hef svo bara ekkert að segja. Bæ í bili,
Í bíómynd....
"Ladder 49" áðan. Ég var að keyra Laugaveginn og sé þá að það er
svaka bruni e-r staðar. Við Eygló vorum sko saman og við komumst
ekki niður Bankastrætið því það var búin að loka þar vegna brunans.
Við keyrðum þá Hverfisgötuna niður og vippuðum okkur upp á
gangstétt og vorum með brunann bara á breið"rúðu" fyrir framan
okkur. Þetta var alveg rosalegt. Ég sá alveg eldtungurnar koma upp
úr þakinu og slökkviliðsmennina að berjast með gommu af vatni á
móti eldinum. En rosalegur kraftur var í eldinum. Hann var
eiginlega ótöðvandi. Og reykurinn, jiminn, það var gott að það var
vindur en ekki logn því annars hefði verið óbærilegt þarna. En guðs
mér. Í gær var ég hjá henni Eygló minni þegar pabbi hringir í mig
og biður mig að koma með bíllyklana út. Ég stökk út og þá sé ég
pabba koma á gamla peogeot-inum hennar ömmu. Og pabbi kom til að
"skipta" við mig. Ég hef haft afnot af hvíta bílnum þeirra pabba og
mömmu, borgað samt tryggingar og það sjálf. Pabba vantaði bíl fyrir
Pólverjana sem vinna hjá honum, svo hann keypti ömmu bíl og
Pólverjarnir fá hvíta og ég fékk ömmu bíl sem er nú minn. Og þvílík
hamingja:):):) Ég á svo góðan og frábæran pabba:):) Það fylgdi sko
geislaspilari svo núna er ég alltaf að góla með Friðriki Ómari
þegar hann syngur júróvisjonsmellinn sinn "Eldur" :):) Ég keypti
mér nefnilega diskinn um daginn:):) Jæja, mig langaði bara að láta
Gullkorn og yndin mín þrjú:):)
verðskulda það. En ég er líka þakklát og þakka Guði á hverjum degi
fyrir blessanir mínar. Ég var lasin um daginn og hún Sara Ísold var
alveg rosalega meðvirk í að vera líka "lasin" Hún sagði í eitt
skiptið, "mamma, mér er svo heitt á ennunum mínum og hárunum, ég
held ég sé líka lasin. Hún var ekkert lasin en vorkenndi mér bara
svo mikið og vildi vera veik eins og ég. Seinna sama dag spurði hún
mig, "mamma, ertu lasin????" og ég svaraði auðvitað játandi, þá
sagði sú stutta, "viltu mömmu þína???" Ég sagði henni að mamma væri
orðin svo stór að hún þyrfti ekki mömmu sína þó hún væri lasin.
nýbúin að læra að skrifa nafnið sitt og gerir það best af krökkunum
á sinni deild:):) Henni fer rosalega hratt fram í tjáningu og það
hjálpar henni mikið að vera í talþjálfun hjá henni Eyrúnu. Hún var
í ferðalagi með leikskólanm í dag og María sem er þroskaþjálfinn á
leikskólanum var eitthvað að skipta sér af henni, þá segir hún bara
" ég er ekki að tala við þig" Mín bara góð með sig..... Hún er líka
í stuðning. Hún Danía Rut bræddi mig alveg ofan í tær um daginn.
Hún kom til mín og knúsaði mig alveg helling og sagði við mig "
mamma, þú góð OG sæt...." það sem ég bráðnaði... Þær kunna sko
alveg að fylla á tankinn hjá mér þegar ég er þreytt og
litla skinnið. Hún er hálfpartinn búin að vera lasin síðan um
árámótin. Alltaf með kvef og e-ð slöpp. Hún er ekki farin að ganga,
er voðalega varkár ef maður ætlar að svindla á henni og nota
skeiðar og sleppa henni svo. Hún sér sko alveg í gegnum það. Hún er
farin að segja mamma, babbi, og da "takk". Hún er alltaf brosandi
og hlæjandi og hún er mikið farin að leika við systur sínar og
sérstaklega Söru Ísold sem er alveg ótrúlega þolinmóð við
pabba og mömmu á Selfossi, það er svoooo notalegt að vera hérna.
Kem oft og gisti, svo notó potó. Vð systurnar vorum að fá hluti frá
Hrefnu ömmu, ég fékk málverk, kertastjaka, blómavasa, blómabækur og
fleira. Rosalega gaman að fá svona hluti. Það var sko verið að
selja íbúðina hennar ömmu og öllu búinu var skipt á milli pabba og
systkinanna. Svo fengum við systrurnar að velja það sem okkur
langaði í:):) Ég ætla ekki að hafa þetta lengra..... Hafið það ofsa
Sara Ísold 3 ára....
var að halda upp á 3ja ára afmælið hennar Söru Ísoldar hjá pabba og
mömmu. Mamma hjálpaði mér alveg helligng við að undirbúa og baka.
Íris systir gerði svo alveg svakalega flotta afmælisköku í
froskalíki:):) Takk mamma og Íris, ég elska ykkur grilljón.
og pökkum. Daman fékk alveg helling, leikföng, föt og pening. Það
nýtt dót fyrir hvert barn í afmælinu að prófa.... Ég, Danía Rut og
Þórey Erla gáfum henni hárauðan Brio dúkkuvagn, svona gamaldags.
Henni fannst hann svooo flottur þegar hún var nýbúin að fá hann að
hún knúsaði mig bara með einni hendi því hún vildi sko ekki sleppa
gripnum:):) Algjör snúlla. Hún er svo búin að vera í mömmó síðan.
Ég er eiginlega svona að stelast til að blogga. Þegar maður á svona
3 ÆÐISLEG kríli þá er ekki alltaf tími til að vera að blogga. Rétt
núna var Danía Rut að koma og knúsa mig svo ég held ég segi þetta
gott. Takk allir sem komu í gær og líka þeir sem komu ekki en sendu
samt gjöf:):) Takk Lína:):):) Kær kveðja, Arna
Lífið er...
gaman, ég sé fallega menn út um allt. Það úir og grúir af þeim:-/
En það er fínt, það má nebbla horfa:):) En ég er núna hjá pabba og
mömmu, við vorum hérna í vöfflukaffi systurnar og erum bráðlega að
fara í bæinn. Þetta er nú voða litlaust blogg, vilid bara láta vita
Já...
stéttaskipting á Íslandi. Leiðinleg staðreynd. Á meðan
skemmta í klukkutíma, þá er fólk hér á Íslandi sem nær ekki endum
saman og þarf að fá hálp hjá mæðrastyrksnefnd. Mér finnst þetta
eiginlega alveg hræðilegt. En lítið sem ég get gert. Myndi maður
hafa samvisku í svona ef maður ætti svona marga peninga og vissi af
aðeins og taka til heima hjá mér. Davíð var nefnilega að flytja um
daginn og ég átti víst ennþá alveg helling af dóti hjá honum. En
það er nú allt eiginlega komið í geymslu. Ég fékk stelpurnar til
mín svona auka á föstudaginn því það var lokað á leikskólanum
gelneglur hjá henni Emiliu frænku um daginn. Sara Ísold var svo
hrifin af nöglunum að hún sagði við mig "mamma, þú fara í buðina á
morgun og kaupa neglur handa mér", hún verður sko góð einn
horfa á Eurovision, gaman að sjá frænku mína hana Hrönn og Fanný
Tryggva og Ágústu Ósk að syngja bakraddir. Kristna fólkið bara að
meika það. En jæja, það eru allir farnir að kalla á mig. Ég ætlaði
víst bara að vera í 5 mínútur í tölvunni. Verð að fara að fá mér
tölvu heim til mín:):) Guð geymi ykkur öll, Love, love,
Gleði, gleði, gleði....
klukkan var alveg að verða 4. Ég var að vinna og ég heyrði kallað
nafnið mitt. Ég sá mömmu og pabba og fannst voða gaman að sjá þau.
En svo sá ég líka litlar tvær dömur og ég var svo glöööð að sjá þær
að fór að gráta í miðri búð. Knúsaði þær og kyssti alveg í klessu.
Mamma og pabbi höfðu farið og sótt Daníu Rut og Söru Ísold á
Blönduós en þangað keyrðu Doris og Mummi á móti pabba og mömmu. Ég
get varla lýst því hvað ég varð glöð að fá stelpurnar mínar. Það
var bara ÆÐISLEGT. Núna vantar mig bara hana Þóreyju Erlu en hún
verður vonandi útskrifuð af spítalanum á þriðjudaginn og kemur
vonandi suður sama dag. Hún er laus við slönguna sem færði henni
næringu í æð. Hún er með bakteríusýkingu í lungunum sínum og slæma
flensu. Þið megið endilega biðja fyrir henni, litlu elskunni minni.
Jæja, núna er ég semsagt hjá pabba og mömmu og er fljótlega að fara
að baða dúllurnar. Þær fá að fara með frænkum sínum í bað, Danía
Rut með Petru Rut og Sara Ísold með Katrínu Töru.... Gleðileg
áramót og takk fyrir gömlu árin.............. Arnan
GRÁTUR...............
litla skinnið mitt er komin með e-a bakteríusýkingu og er á
sjúkrahúsinu á Akureyri og verður þar næstu 2-3 sólarhringa.
:(:(:( Ég var farin að hlakka svo til að fá stelpurnar til
mín en núna frestast það til í fyrsta lagi 2.janúar. Ég er
svooo svekkt. Og verst þykir mér að geta ekki farið og verið
hjá henni. Ég heyrði í Davíð áðan og hún var grátandi og ég
mátti hafa mig alla við að fara ekki að gráta líka, enda á
leið í klippingu! En svo fékk ég að tala við hana áðan í
símann og hú var voða hissa og fór svo aðeins að tala við
mig. Úff ég sakna stelpnanna, svooo mikið. Sara Ísold sagði
fyrir nokkrum dögum við pabba sinn, "Pabbi, fer ég ég ekki
bráðum aftur til mömmu?" Það er gott að vita að einhver
Jólagjafirnar,,,,,
búist við. Pabbi og mamma gáfu mér Ipod nano og ég var svo glöð að
ég fór að gráta. Bjóst sko alls ekki við ipod en mig langaði MIKIÐ
í hann. Frá Eygló minni fékk ég rosalega flottan fíl, Íris gaf mér
æðislegan jólasvein, svaka sætan. Hrund skvís gaf mér
mamma átti heiðurinn af því að kaupa hana. Ég hafði ekki hugmynd um
það:):) Mamma er svo mikið ÆÐI. Svo fékk ég Joe boxer náttbuxur frá
og mikið verður gaman þá. Þær hafa það voða gott hjá afa sínum og
ömmu en ég hlakka alveg svakalega mikið til að knúsa þær þegar þær
koma. Jújú. En núna er ég semsagt stödd hjá henni Írisi systir sætu
kúlulínu. Við erum að fara að spila Trivial Pursuit en Eygló fékk
það í möndlugjöf. Eygló og Bjössi eru hérna, Íris og Karlott og svo
eru Hrund og Thea á leiðinni. Þetta verður alveg svaka skemmtilegt
kvöld. Áðan var afmæli hjá Tedda frænda og þar var gaman. Það er
sko alltaf gaman að heimsækja þau fjölskylduna. En jæja, þar sem ég
"stalst" til að blogga hérna þá er ég að hugsa um að hætta því núna
og láta þetta gott heita. Ætla að fara að spila og hlæja örugglega
helling. Við erum svo skemmtileg víst. Lifið heil en ekki hálf.